Geldingahnappur
Armeria vulgaris
Lýsing
Blöð þéttstæð, striklaga, og minna á grasblöð. Þau eru þó miklu þéttari í sér, randhærð og strend. Plantan myndar jafnan litlar þúfur, sem vaxa upp af þéttum og gildum jarðstöngli.Blóm eru efst á hærðum og sívölum blómskipunarlegg í kolli, sem líkist körfu við fyrstu sýn.
Nytjar
Ræturnar hafa verið borðaðar. Þær eru harðar undir tönn og kallast harðasægjur (sjá einnig lambagras).Greiningarlykill
Blómskipan

Karfa/kollur
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Rauðleitur
Blaðskipan

Stofnhvirfing
Blaðlögun

Mjó blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt