Hjartatvíblaðka
Listera cordata
Lýsing
Tvö breiðhjartlaga, gagnstæð blöð eru um eða neðan miðju stönguls. Plantan er öll móleit og fíngerð. Blóm eru lítil, mógræn eða brúnrauð og með rauðmóleitri, klofinni vör. Klasinn er gisblóma.Fræmyndunin gengur mjög fljótt og á stundum eru fræin þroskuð neðst í klasa en efstu blómin nýútsprungin. Fjölgar sér þó mest með rótaskotum.
Greiningarlykill
Blómskipan

Klasi/ax
Blómkróna

Annað
Blómlitur

Annað
Blaðskipan

Gagnstæð
Blaðlögun

Venjuleg heil
Blaðstrengir

Bogstrengjótt