Undafífill

Hieracium sp.

Lýsing

Undafíflar eru fjölærar plöntur með blaðlausum eða blöðóttum stöngli. Blöðin eru flest stofnstæð, stilkuð og margvísleg að lögun. Stöngull er jafnan með eitt eða fleiri blöð.

Blóm sitja í einni eða fleiri körfum. Þau eru öll tungukrýnd. Blómstæðið er flatt eða kollótt. Aldinið er smástrent og efst á því er legglaus svifkrans. Blómin á stundum rauðleit.

Greiningarlykill


Blómskipan
Karfa/kollur
Blómkróna
Annað
Blómlitur
Gulur
Blaðskipan
Stofnhvirfing
Blaðlögun
Venjuleg heil
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt