Þúfusteinbrjótur
Saxifraga caespitosa
Lýsing
Blöðin eru niðurmjó með 3–5 snubbótta flipa, í þéttum hvirfingum. Uppréttir blómstönglar, fáblöðóttir, eru kirtilhærðir og greinast venjulega í toppinn í marga blómleggi. Vex í þéttum þúfum eða toppum.Blóm eru frekar stór, 0,8–1,5 cm að þvermáli. Krónublöðin eru með gulleitum æðum, um helmingi lengri en bikarblöðin.
Greiningarlykill
Blómskipan

Annað
Blómkróna

5 krónublöð
Blómlitur

Hvítur
Blaðskipan

Stakstæð
Blaðlögun

Sepótt/Flipótt blöð
Blaðstrengir

Fjaðurstrengjótt