Hrafnaklukka

Cardamine nymanii

Lýsing

Blöðin eru fjöðruð en nokkur munur er á stofn- og stöngulblöðum. Smáblöð stofnblaða eru kringlu- eða egglaga en smáblöð stöngulblaða aflöng eða striklaga. Stöngullinn er holur og lítt eða ekkert greindur.

Blóm eru í stuttum klasa efst á stöngli. Krónublöðin eru ýmist ljósblá, fjólublá eða hvít, þrisvar sinnum lengri en bikarblöðin.

Nytjar

Sagt er að te af fjólubláum plöntum sé gott við svefnleysi en af hvítum vilji menn vaka lengi. Auk þess var hún álitin magastyrkjandi, uppleysandi, ormdrepandi og auka þvag og tíðir. Ekki er ráðlegt að ófrískar konur noti jurtina.

Greiningarlykill


Blómskipan
Klasi/ax
Blómkróna
4 krónublöð
Blómlitur
Hvítur
Blaðskipan
Stakstæð
Blaðlögun
Skipt/Samsett blöð
Blaðstrengir
Fjaðurstrengjótt